|
- DAGSKRÁ TÓNLISTARDAGA 2001 -
|
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
Soli Deo Gloria - Guði einum til dýrðar
28. október til 14. nóvember 2001
Sunnudaginn 28. október:
Kl. 11.00: Hátíðarmessa á kirkjuvígsludegi
Prestur: sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Organisti: Marteinn H. Friðriksson.
Flutt verður Litla orgelmessa eftir J. Haydn.
Flytjendur: Dómkórinn, Hulda Björk Garðarsdóttir
og hljóðfæraleikarar.
Kl. 17.00: Setning Tónlistardaga
Alina Dubik syngur einsöng. Dómkórinn syngur lög
eftir Mendelssohn og Fauré. Frumflutt verður tónverkið
Rauður hringur
eftir Þuríði Jónsdóttur fyrir einsöngvara,
kór og raftónlist.
Flytjendur: Magnea Gunnarsdóttir, Anna Sigríður Helgadóttir,
Guðlaugur Viktorsson, Dómkórinn og Marteinn H. Friðriksson.
Aðgangur: 1.000 kr.
Ummæli fjölmiðla um setningu Tónlistardaga
Jón Ásgeirsson
Jónas
Sen
Laugardaginn 3. nóvember:
Kl. 17.00: Orgeltónleikar
Marteinn H. Friðriksson leikur.
Aðgangur ókeypis.
Sunnudaginn 4. nóvember:
Kl. 20.30: Tónleikar tónlistarfólks úr
nágrenni Dómkirkjunnar
Meðal flytjenda: Kjartan Óskarsson, Hrefna Eggertsdóttir,
Laufey Sigurðardóttir og Oddur Björnsson.
Aðgangur ókeypis.
Sunnudaginn 11. nóvember:
Kl. 20.30: Ljóðakvöld í Dómkirkjunni
Umsjón hafa Þórarinn Eldjárn og sr. Hjálmar
Jónsson. Ragnheiður Haraldsdóttir leikur á
blokkflautu og Marteinn H. Friðriksson á sembal.
Aðgangur ókeypis.
Miðvikudaginn 14. nóvember:
Kl. 20.30: Tónleikar Dómkórsins í Kristskirkju
Flutt verður tónlist eftir Hjálmar H. Ragnarsson,
Knut Nystedt, Benjamin Britten og kantata nr. 172 eftir J.S.Bach.
Flytjendur: Marta Guðrún Halldórsdóttir, Anna
Sigríður Helgadóttir, Finnur Bjarnason, Ólafur
Kjartan Sigurðarson, kammersveit, Dómkórinn og Marteinn
H. Friðriksson.
Aðgangur: 1.500 kr.
Miðasala
Aðgöngumiðar eru seldir í Dómkirkjunni alla
virka daga á milli kl. 10 og 17. Athugið sérstaklega
að miðar á tónleikana í Kristskirkju 14.
nóvember verða einungis seldir í Dómkirkjunni.
Miðapantanir
Hægt er að panta miða á Tónlistardaga með því að senda tölvupóst á domkorinn@domkirkjan.is.
Tilgreina þarf á hvaða tónleika pantað er. Miðar á setningu
Tónlistardaga verða afhentir við innganginn. Pantaðir
miðar á tónleika í Kristskirkju 14. nóvember
verða afhentir í Dómkirkjunni alla virka daga á
milli kl. 10 og 17.
|