Tónlistardagar
í tuttugasta sinn
Soli Deo Gloria - Guði einum til dýrðar er yfirskrift
Tónlistardaga Dómkirkjunnar sem nú eru haldnir
í tuttugasta sinn. Víst er um að stór hluti
þeirrar tónlistar sem við köllum sígilda
er saminn undir þessu kjörorði enda flestir höfuðsnillingar
tónbókmenntanna innblásnir trúarhita og
gjarnan á launum hjá kirkjunni eða trúræknum
auðmönnum.
En þannig er þetta víst ekki lengur. Nú sækja
tónskáld stóran hluta launa sinna í opinbera
sjóði og eru ekki trúræknari en gengur og gerist.
En kirkjan er enn að störfum og hana vantar alltaf tónlist.
Þess vegna var það sem forsvarsmenn Dómkirkjunnar
með Martein H. Friðriksson dómorganista í fararbroddi
efndu til fyrstu Tónlistardaga Dómkirkjunnar árið
1982. Markmiðið var og er að efla og kynna þá
tónlist sem samin er guði til dýrðar og fólki
til uppbyggingar.
Í þessu skyni er árlega fengið tónskáld
til að semja verk fyrir Dómkórinn og aðra flytjendur
og er það frumflutt í kirkjunni á upphafstónleikunum.
Einnig er tónlistarfólki nær og fjær boðið
að halda tónleika. Hátíðin er þannig
skipulögð að hún hefst á setningarathöfn
þar sem tónverk ársins er frumflutt og sömu
helgi er hátíðarmessa þar sem sérstaklega
er vandað til tónlistarflutnings. Næstu daga eru svo
haldnir þrennir tónleikar og að þessu sinni bætist
við ljóðakvöld.
Góðir gestir
Á þeim árum sem liðin eru frá því
Tónlistardagar Dómkirkjunnar voru fyrst haldnir hafa öll
helstu núlifandi tónskáld Íslands lagt Dómkórnum
til tónverk en auk þess hafa þrjú erlend tónskáld,
Norðmaðurinn Knut Nystedt, Tékkinn Petr Eben og Þjóðverjinn
Siegfried Thiele, verið beðin að semja verk sem kórinn
hefur frumflutt. Nokkur þessara verka voru sungin inn á
hljómdisk sem Dómkórinn gaf út í
tilefni af 200 ára afmæli Dómkirkjunnar árið
1996.
Að þessu sinni býður Dómkórinn gömlum
kórfélaga til leiks. Þuríður Jónsdóttir
söng með kórnum fyrir nokkrum árum en hún
er nú búsett í Bologna á Ítalíu
þar sem hún leggur stund á nám og tónsmíðar.
Verk hennar heitir Rauður hringur og er samið fyrir kór
og þrjá einsöngvara auk þess sem raftónlist
er bætt við sönginn.
Gestir kórsins á tónlistardögum hafa komið
víða að og úr ólíku umhverfi. Þar
hafa verið tónskáld og organistar, innlendir og erlendir,
kirkju- og barnakórar úr nágrannabyggðum og
lengra að komnir, að ógleymdum söngvurum og öðrum
tónlistarmönnum sem tekið hafa þátt í
flutningi Dómkórsins á tónverkum, nýjum
og gömlum.
Í þessum heimsóknum hafa skapast góð
tengsl og kynni sem stundum hafa leitt til þess að kórnum
hefur verið boðið að endurgjalda heimsóknina.
Kórinn hefur því sungið víða um lönd
og á mörgum stöðum innanlands. Ein slík
ferð var farin haustið 1999 þegar kórnum var boðið
að taka þátt í tónlistarhátið
í Prag sem haldin var í tilefni af sjötugsafmæli
Petr Ebens sem er eitt þekktasta tónskáld Tékka
nú um stundir. Auk þess hefur kórinn heimsótt
Danmörku, Þýskaland, Belgíu, Spán, Skotland
og Ungverjaland.
Fjölbreytt dagskrá
Tónlistardagar Dómkirkjunnar þetta haustið hefjast
sunnudaginn 28. október með hátíðarmessu
í kirkjunni kl. 11. Þar flytur Dómkórinn
undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar Litlu orgelmessuna
eftir Joseph Haydn. Síðar um daginn verður setningarhátíðin
þar sem Alina Dubik syngur einsöng við undirleik Hrefnu
Eggertsdóttur en hún leikur á nýjan flygil
sem Dómkirkjan hefur eignast. Dómkórinn syngur
verk eftir Mendelssohn og Fauré að ógleymdu verki
Þuríðar Jónsdóttur sem áður
er nefnt en í flutningi þess taka þátt einsöngvararnir
Magnea Gunnarsdóttir, Anna Sigríður Helgadóttir
og Guðlaugur Viktorsson.
Laugardaginn 3. nóvember heldur Marteinn H. Friðriksson orgeltónleika
í kirkjunni og daginn eftir verða gestatónleikarnir.
Að þessu sinni var ekki leitað langt eftir gestum heldur
var tónlistarfólki sem býr í nágrenni
kirkjunnar boðið að halda tónleika. Meðal þeirra
sem þekktust boðið eru Kjartan Óskarsson, Hrefna
Eggertsdóttir, Laufey Sigurðardóttir og Oddur Björnsson
en fleiri munu eflaust bætast í hópinn.
Sunnudaginn 11. nóvember verður ljóðakvöld
í Dómkirkjunni og þar verður heldur ekki farið
út fyrir sóknina því Þórarinn
Eldjárn skáld sem býr skammt frá kirkjunni
hefur umsjón með ljóðakvöldinu og auk dómorganistans
sem að þessu sinni leikur á sembal leikur annar nágranni
kirkjunnar, Ragnheiður Haraldsdóttir, á blokkflautu
en hún syngur raunar einnig með Dómkórnum.
Lokatónleikar Tónlistardaganna verða haldnir í
Kristskirkju í Landakoti miðvikudaginn 14. nóvember.
Þar flytur Dómkórinn tónlist eftir Benjamin
Britten, Knut Nystedt, Hjálmar H. Ragnarsson og tónleikunum
lýkur með kantötu nr. 172 Erschallet ihr Lieder sem
er eitt af glæsilegustu verkum Jóhanns Sebastians Bachs.
Einvalalið söngvara kemur til liðs við kórinn:
Marta Guðrún Halldórsdóttir, Anna Sigríður
Helgadóttir, Finnur Bjarnason og Ólafur Kjartan Sigurðsson.
Undir þessum söng leikur svo kammersveit þar sem Zbigniew
Dubik er konsertmeistari.
Greinarhöfundur: Þröstur Haraldsson.
Ummæli fjölmiðla um setningu Tónlistardaga
Jón Ásgeirsson
Jónas
Sen
Dagskrá Tónlistardaga 2001
|