Dómkirkjan í Reykjavík



DÓMKIRKJAN Í REYKJAVÍK

Dómkirkjan
  • Staða
  • Sagan
  • Sóknarnefnd

    Starf
  • Verkefni framundan
  • Markmið þjónustu
  • Starfslið
  • Líknarþjónusta
  • Félagsstarf

    Dagskrá
  • Dagskrá
  • Dagskráryfirlit

    Tónlist
  • Organistinn
  • Dómkórinn
  • Hljóðfærin

    Fræðsla
  • Prédikanir
  • Andleg fræði
  • Hugvekjur
  • Fyrirbænabeiðnir
  • Börn
  • Unglingar
  • Grín

    Tenglar
  • Æskulýðsfélagið
  • Þjóðkirkjan


    domkirkjan.is/
  • - TÓNLISTARDAGAR DÓMKIRKJUNNAR 2002 -


    Tónlistardagar í tuttugasta og fyrsta sinn

    Tónlistardagar Dómkirkjunnar eru nú haldnir í 21. sinn. Frá upphafi hefur Dómkórinn jafnan fengið innlend og erlend tónskáld til að semja tónverk sem hafa verið frumflutt við setningu Tónlistardaganna. Þau tuttugu tónverk sem hljómað hafa í Dómkirkjunni eru mjög fjölbreytt að gerð og umfangi og hafa mörg þeirra verið á tónleikaskrá kórsins og organistans um árabil. Meðal þeirra má einnig finna stór og glæsileg tónverk fyrir kór, einsöngvara og hljómsveit og önnur sem hafa gert mjög miklar kröfur til flytjenda. Þessi tónverk hafa því sjaldnar verið flutt en þau eiga skilið. Að þessu sinni var ákveðið að feta nýjar slóðir og óska eftir styttri tónverkum sem jafnframt myndu henta til flutnings í guðsþjónustum síðar meir. Leitað var til fjögurra tónskálda, þeirra Báru Grímsdóttur, Hildigunnar Rúnarsdóttur, Jóns Hlöðvers Áskelssonar og Snorra Sigfúsar Birgissonar eftir nýjum sálmalögum eða stólversum og verða verkin frumflutt laugardaginn 26. október.
    Daginn eftir verða tónleikar Dómkórsins þar sem flutt verður efnisskrá sem kórinn söng í kórakeppni í Bangor á Írlandi sl. vor og vann þá fyrstu verðlaun í riðli kirkjutónlistar.
    Hilmar Örn Agnarsson organisti og kórstjóri heldur orgeltónleika í Dómkirkjunni og á öðrum tónleikum syngur Barnakór Biskupstungna ásamt Barnakór Dómkirkjunnar.
    Lokatónleikar verða haldnir í Hallgrímskirkju þar sem flutt verður kantatan Saint Nicolas eftir Benjamin Britten. Í því verki syngja Dómkórinn og Skólakór Kársness, einsöngvari er Garðar Thor Cortes og kammerhljómsveit leikur. Stjórnandi er Marteinn H. Friðriksson.
    Þetta stórbrotna tónverk flutti Dómkórinn fyrir 14 árum í Háteigskirkju en við förum nú í nágranna okkar í Hallgrímskirkju, þar sem flutningur verksins kallar á stóra kirkju og voldugan orgelhljóm. Sjá nánar um Nikulás og kantötuna.
    Gestir Tónlistardaganna eru Garðar Thor Cortes og tónskáldin fjögur, en tvö þeirra koma lengra að til að verða við frumflutning á verkum sínum.

     

    Dagskrá Tónlistardaga 2002

    Heimasíða Tónlistardaga Dómkirkjunnar

     

    Dómkirkjan í Reykjavík - sími: 520 9700
    tölvupóstur: domkirkjan@domkirkjan.is - Lækjargata 14a, 101 Reykjavík.