Dómkirkjan í Reykjavík



DÓMKIRKJAN Í REYKJAVÍK

Dómkirkjan
  • Staða
  • Sagan
  • Sóknarnefnd

    Starf
  • Verkefni framundan
  • Markmið þjónustu
  • Starfslið
  • Líknarþjónusta
  • Félagsstarf

    Dagskrá
  • Dagskrá
  • Dagskráryfirlit

    Tónlist
  • Organistinn
  • Dómkórinn
  • Hljóðfærin

    Fræðsla
  • Prédikanir
  • Andleg fræði
  • Hugvekjur
  • Fyrirbænabeiðnir
  • Börn
  • Unglingar
  • Grín

    Tenglar
  • Æskulýðsfélagið
  • Þjóðkirkjan


    domkirkjan.is/
  • - TÓNLISTARDAGAR DÓMKIRKJUNNAR 2003 -


    Tónlistardagar í tuttugasta og annað sinn

    Tónlistardagar Dómkirkjunnar hafa verið haldnir árlega frá 1982 og hefjast nú laugardaginn 25. október. Þar leikur Marteinn H. Friðriksson nýtt orgelverk eftir Tryggva Baldvinsson sem hann samdi fyrir Tónlistardagana 2003. Einnig syngur Dómkórinn kórverk eftir breska tónskáldið Bob Chilcott, en hann verður tónskáld Tónlistardaga á næsta ári.
    Árlega koma gestir erlendis frá á Tónlistardagana og í ár mun organleikarinn Guðný Einarsdóttir leika á orgel kirkjunnar, en hún stundar nú framhaldsnám í kirkjutónlist í Kaupmannahöfn.
    Unglingakór Dómkirkjunnar fór í sína fyrstu tónleikarferð til Danmerkur sl. sumar og á tónleikum 9. nóvember flytur kórinn hluta af efnisskrá sumarsins ásamt nýjum viðfangsefnum.
    Ljóðakvöld í umsjá sr. Hjálmars Jónssonar verður í safnaðarheimilinu þriðjudagskvöldið 11. nóvember. Þar gefst kærkomið tækifæri að hlýða á ljóðskáld lesa úr verkum sínum og milli atriða munu Ragnheiður Haraldsdóttir, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir og Marteinn H. Friðriksson flytja barokktónlist.
    Hápunktur Tónlistardagana verða tónleikar Dómkórsins í Neskirkju. Flutt verður stórbrotið tónverk Missa brevis eftir Zoltán Kodály. Er þetta í fyrsta sinn sem tónverkið er flutt á Íslandi.

    Sjá dagskrá næstu daga

    Heildardagskrá Tónlistardaga 2003

    Heimasíða Tónlistardaga Dómkirkjunnar

     

    Dómkirkjan í Reykjavík - sími: 520 9700
    tölvupóstur: domkirkjan@domkirkjan.is - Lækjargata 14a, 101 Reykjavík.