![]() |
DÓMKIRKJAN Í REYKJAVÍK |
Dómkirkjan Starf Dagskrá Tónlist Fræðsla Tenglar domkirkjan.is/ |
||
Kórdrengur
af lífi og sál
Dómkórinn flytur Advent Antiphons (Aðventu-svarvers frá Salisbury) eftir Bob Chilcott laugardaginn 30. október kl. 17. Eitt sinn kórdrengur, ávallt kórdrengur – gætu verið einkennisorð tónskáldsins sem samdi tónverk Tónlistardaga Dómkirkjunnar í ár. Bob Chilcott heitir hann og verður fimmtugur að ári. Hann hóf tónlistarferil sinn sem kórdrengur í King's College í Cambridge á Englandi og söng meðal annars einsöng í Pie Jesu, hinum gullfallega kafla úr Requiem eftir Gabriel Fauré, inn á plötu einungis tólf ára að aldri. Hann sneri aftur til Cambridge átján ára gamall til að stúdera tónlist og lauk meistaragráðu. Að námi loknu vann hann fyrir sér með söng í Lundúnum og útsetningum á hljómsveitartónlist fyrir BBC útvarpið. Árið 1985 gekk hann til liðs við hinn heimsþekkta sönghóp The King's Singers og söng með þeim í tólf ár. Einnig annaðist hann útsetningar fyrir hópinn. Þegar hann sagði skilið við King's Singers var honum boðin staða kórstjóra í Royal College of Music í Lundúnum þar sem hann stjórnaði heimsþekktum 200 manna kór. Undanfarin ár hefur hann helgað sig tónsmíðum og einnig þar hefur árangurinn verið glæsilegur. Hann hefur samið mest af kórtónlist og er að sögn kunnugra orðinn einn allra vinsælasti höfundur slíkrar tónlistar í Bretlandi. Um tónlistina hans hefur verið sagt að hún sé allt að því dáleiðandi. Megnið af tónverkum hans eru aðgengileg fyrir alla kóra þótt hvergi sé slegið af listrænum kröfum. Sjálfur hefur þessi kórdrengur sagt þetta um kórstarf: „Aflið sem býr í kórum og kórstarfi
er gífurlegt. Það gefur þátttakendunum
svo mikið – gleði, fullnægju í starfi, stolt,
félagsskap, en ofar öllu er tilfinningin fyrir því
að vera hluti af einhverju sem getur auðgað lífið,
bæði í menningarlegur og félagslegum skilningi.
Ég tel það skyldu tónskáldsins að
næra þetta líf og afla samsöng þeirrar
viðurkenningar að samfélagið komist ekki af án
hans.“ Þröstur Haraldsson Um Tónlistardaga
2004
Heimasíða Tónlistardaga Dómkirkjunnar
|