![]() |
DÓMKIRKJAN Í REYKJAVÍK |
Dómkirkjan Starf Dagskrá Tónlist Fræðsla Tenglar domkirkjan.is/ |
||
Tónlistardagar 2004 Soli Deo Gloria - Guði einum til dýrðar
„Aflið sem býr í kórum og kórstarfi er gífurlegt,“ er haft eftir Chilcott, en sjálfur hefur hann sungið opinberlega frá barnsaldri. Einna kunnastur en hann fyrir söng sinn með The King's Singers, en eftir tólf ára feril við söng og útsetningar með söngflokknum tók hann við stjórn kórs Royal College of Music í Lundúnum. Chilcott hefur helgað sig tónsmíðum síðustu ár. Í fyrra flutti Dómkórinn verkið Jubilate eftir Bob Chilcott og kviknaði þá hugmyndin að því að fá hann til að semja fyrir kórinn og varð það úr. Advent Antiphons er áttradda mótetta í sjö köflum. Eins og nafnið gefur til kynna tengist texti hennar aðventunni en það eru aðventu-svarvers frá Salisbury. Auk frumflutnings Dómkórsins á verki Chilcotts verður einnig flutt á tónleikunum þann 30. október tónlist fyrir einsöngvara, flautu, sembal og orgel. Flytjendur verða Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Pamela De Sensi og Steingrímur Þórhallsson. Tónlistardagarnir hefjast hinsvegar á messu tileinkaðri tónlist Róberts Abrahams Ottóssonar sunnudaginn 24. október kl. 11:00. Á meðal annarra viðburða má nefna tónleika unglingakórs Dómkirkjunnar undir stjórn Kristínar Valsdóttur 31. október kl. 17:00, orgeltónleika Eyþórs Inga Jónssonar 5. nóvember kl. 20:30 og tónleika sem haldnir verða í Dómkirkjunni sunnudaginn 7. nóvember þegar ýmsir flytjendur flytja hjónavígslutónlist. Dómkórinn gengst nú fyrir samkeppni um nýja hjónavíglustónlist og verða verðlaunaverkin flutt á þessum tónleikum, sem hefjast kl. 17:00. Lokaatriði 23. Tónlistardaga Dómkirkjunnar verða svo kórtónleikar í Neskirkju 14. nóvember. Á þeim verður meðal annars flutt Te deum eftir Arvo Pärt fyrir þrjá kóra, strengjasveit, píanó og hljóðband. Auk Dómkórsins flytja verkið hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar dómorganista. Heildardagskrá Tónlistardaga Dómkirkjunnar 2004. Ítarlegri
upplýsingar um tónskáldið Bob Chilcott
Heimasíða Tónlistardaga Dómkirkjunnar
|