![]() |
DÓMKIRKJAN Í REYKJAVÍK |
Dómkirkjan Starf Dagskrá Tónlist Fræðsla Tenglar domkirkjan.is/ |
||
Um Tónlistardaga 2004 Soli Deo Gloria - Guði einum til dýrðar er yfirskrift
Tónlistardaga Dómkirkjunnar. Víst er um að
stór hluti þeirrar tónlistar sem við köllum
sígilda er saminn undir þessu kjörorði enda flestir
höfuðsnillingar tónbókmenntanna innblásnir
trúarhita og gjarnan á launum hjá kirkjunni eða
trúræknum auðmönnum. Á þeim árum sem liðin eru frá því Tónlistardagar Dómkirkjunnar voru fyrst haldnir hafa öll helstu núlifandi tónskáld Íslands lagt Dómkórnum til tónverk en auk þess hafa þrjú erlend tónskáld, Norðmaðurinn Knut Nystedt, Tékkinn Petr Eben og Þjóðverjinn Siegfried Thiele, verið beðin að semja verk sem kórinn hefur frumflutt. Nokkur þessara verka voru sungin inn á hljómdisk sem Dómkórinn gaf út í tilefni af 200 ára afmæli Dómkikjunnar árið 1996. Um Tónlistardaga
2004
Listi yfir tónverk
samin fyrir Tónlistardaga Dómkirkjunnar: Tónlistardagar 2003 Tónlistardagar 2002 Tónlistardagar 2001
|