Djáknavígsla á sunnudag
Biskup Íslands vígir tvo djákna, sunnudaginn 20.janúar kl 14.00 í Dómkirkjunni, Reykjavík. Vígsluþegar eru Aðalheiður Jóhannsdóttir, kölluð til djáknaþjónustu í Lögmannshlíðarsókn, Eyjafjarðarprófastsdæmi, og Ármann Gunnarsson, kallaður til djáknaþjónustu í Garðasókn, Kjalarnessprófastsdæmi.
Vígsluvottar verða: Sr. Gunnlaugur Garðarsson, Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sr. Friðrik Hjartar, Nanna Guðrún Zoega, djákni og Hólmfríður Margrét Konráðsdóttir, djákni.
Vígsluathöfnin er öllum opin.
Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.
Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn

