Fermingarbörn fædd 1997 og foreldrar


Fermingarveturinn er tími fjölskyldunnar. Á fermingarvetri er tækifæri til að sameinast um hið heilaga, læra, biðja og eiga samfélag í kirkjunni og upplifa hátíðir hennar á sérstakan máta. Við hvetjum ykkur fjölskylduna því til þátttöku í helgihaldi kirkjunnar á fermingarvetri barnsins.

Með því að koma með foreldrum eða forráðamönnum sínum til helgihaldsins læra fermingarbörnin betur að njóta þátttöku í starfi kirkjunnar. 

Fermingarfræðslan hefst með messu og fundi prestanna með fermingarbörnum og foreldrum sunnudaginn 15. ágúst kl. 11 í Dómkirkjunni. Fræðslan verður í námskeiðsformi og einnig verða vikulegir fræðslutímar. 

Námskeið verður haldið dagana 16. – 19. ágúst. Fyrstu þrjá dagana verður námskeiðið frá kl. 10-13 en því lýkur með stuttri ferð þann 19. ágúst kl. 10-15. 

Fræðslutímar verða síðan á miðvikudögum fyrir jól kl. 15:20-17:00. Við biðjum ykkur að taka þann tíma frá næsta haust. Fræðslan fer fram í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar við Lækjargötu 14a. Á fundinum verður nánar farið yfir skipulag fræðslunnar. 

Fermingarbörnin munu taka þátt í æskulýðsmóti í Vatnaskógi í febrúar 2011. Fræðslufundir og samverur fermingarbarna og foreldra verða einnig á dagskránni á fermingarári. 

Allt verður þetta kynnt á fundinum þann 15. ágúst og spurningum svarað eftir föngum. Skráningarblaði skal skila vandlega útfylltu inn til okkar sem fyrst en einnig er hægt að skrá þátttökuna rafrænt með tölvupósti á netfangið domkirkjan@domkirkjan.is . Mikilvægt er að hafa netföng foreldra svo við getum komið skilaboðum til ykkar með þeim hætti. 

Ef þið hafið spurningar hringið þá í kirkjuna í síma 520-9700 eða hafið samband við undirrituð.

Skráning til fermingarfræðslu 2010-2011

Hjartanlega velkomin(n) í fermingarhóp Dómkirkjunnar!Vinsamlegast sendið eftirfarandi upplýsingar á netfangið domkirkjan@domkirkjan.is

Fullt nafn:

Fæðingardagur(kt.)

Fæðingarstaður:

Heimili:

Sími:

Farsími foreldra:

Farsími barna:

Netfang fermingarbarns:

Netföng foreldra:

Skírnardagur og – staður:

Nöfn móður og föður, kennitala og heimilisfang:

Fermingarmessur vorið 2011 eru eftirfarandi.  Merkið við hvaða dagur hentar ykkur: 

Pálmasunnudagur 17. apríl, kl. 11:00

Skírdagur 21. apríl, kl. 11:00

Hvítasunnudagur 12. júní, kl. 11:00

Sunnudaginn, 12. september:
Kl. 11 messa sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar
Skoða alla dagskrá

Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.


Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn