Staða

Dómkirkjan er dómkirkja íslensku Þjóðkirkjunnar. Hún er embættiskirkja, stólkirkja biskups Íslands. Þar eru flestar guðsþjónustur sem tengjast hlutverki biskups sem leiðtoga kirkjunnar og biskups hennar. Þar fara fram flestar prestsvígslur, þar kemur biskup fram á tímamótum ss. áramótum og stórhátíðum og flytur kirkju og þjóð boðskap sinn.

Einnig eru í Dómkirkjunni guðsþjónustur sem byggjast á langri samleið kirkju og ríkisvalds, kirkju og þjóðar. Nefna má guðsþjónustur á þjóðhátíðardaginn og við þingsetningu, innsetningu forseta Íslands og merkisviðburði í lífi þjóðarinnar, jafnt í gleði og sorg.

Dómkirkjan er einnig sóknarkirkja gamla Vesturbæjarins, Miðbæjarins, Þingholtanna og Skuggahverfisins. Prestar hennar þjóna sérstaklega þörfum þess fólks. Starf þjóna hennar miðast aðallega við það fólk sem í sókninni býr.

Dómkirkjunni tilheyrir Safnaðarheimili sem er í Gamla iðnskólanum í Lækjargötu 14a. Þar fara fram margir þættir starfsins auk þess sem prestar og starfsmenn safnaðarins hafa þar starfsaðstöðu sína. En Dómkirkjan er auk þessa sögustaður með tvær aldir að baki. Hún var byggð um það leyti sem Reykjavík fékk hlutverk höfuðstaðar og hefur fylgt þróun borgarinnar með starfi sínu. Hún er vel í stakk búin til að sinna hlutverki sínu um ókominn tíma.

 



Sunnudaginn, 12. september:
Kl. 11 messa sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar
Skoða alla dagskrá

Öll börn eða unglingar á aldrinum 1-18 ára ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Dómkirkjunni. Skoða: Barna og unglingavefinn.


Dómkórinn leiðir safnaðarsöng í messum og stendur fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar á hverju hausti og tónleikum á jólum. Dómkórinn syngur að auki við ýmis tækifæri. Meira um Dómkórinn